Psalms 66

1Til söngstjórans. Ljóð. Sálmur. Fagnið fyrir Guði, gjörvallt jarðríki, 2syngið um hans dýrlega nafn, gjörið lofstír hans vegsamlegan. 3Mælið til Guðs: Hversu óttaleg eru verk þín, sakir mikilleiks máttar þíns hræsna óvinir þínir fyrir þér. 4Öll jörðin lúti þér og lofsyngi þér, lofsyngi nafni þínu. [Sela] 5Komið og sjáið verkin Guðs, sem er óttalegur í breytni sinni gagnvart mönnunum. 6Hann breytti hafinu í þurrlendi, þeir fóru fótgangandi yfir ána. Þá glöddumst vér yfir honum. 7Hann ríkir um eilífð sakir veldis síns, augu hans gefa gætur að þjóðunum, uppreistarmenn mega eigi láta á sér bæra. [Sela] 8Þér lýðir, lofið Guð vorn og látið hljóma lofsöng um hann. 9Hann veitti sálum vorum lífið og lét oss eigi verða valta á fótum. 10Því að þú hefir rannsakað oss, ó Guð, hreinsað oss, eins og silfur er hreinsað. 11Þú hefir varpað oss í fangelsi, lagt byrði á lendar vorar. 12Þú hefir látið menn ganga yfir höfuð vor, vér höfum farið gegnum eld og vatn, en nú hefir þú leitt oss út á víðan vang. 13Ég kem í hús þitt með brennifórnir, efni heit mín við þig, 14þau er varir mínar hétu og munnur minn nefndi, þá er ég var í nauðum staddur. 15Ég færi þér brennifórn af feitum dýrum, ásamt fórnarilm af hrútum, ég fórna nautum og höfrum. [Sela] 16Komið, hlýðið til, allir þér er óttist Guð, að ég megi segja frá, hvað hann hefir gjört fyrir mig. 17Til hans hrópaði ég með munni mínum, en lofgjörð lá undir tungu minni. 18Ef ég hygg á illt í hjarta mínu, þá heyrir Drottinn ekki. 19En Guð hefir heyrt, gefið gaum að bænarópi mínu. 20Lofaður sé Guð, er eigi vísaði bæn minni á bug né tók miskunn sína frá mér.
Copyright information for Icelandic